Já ég er búin að eiga afmæli, jibbý og Bensi var hjá mér

Ég fékk grafíska reiknivél frá ma&pa, Einari, Sunnu og ömmu, kjól frá Ása og Lilju(var reyndar búin að fá hann áður) og bók og blóm frá Bensa

Svo var náttúrulega góður matur og mikið hlegið og haft gaman. Mamma,pabbi og Einar fóru svo heim í sveit í fermingu á laugardagsmorgun en við vorum bara heima

. Kíktum aðeins á Kaffi Amour um kvöldið en vorum svo mest megnis í afslöppun.
Svo var ég að dimmitera á miðvikudaginn(30.ap). ÓGEÐSLEGA gaman

hehe ekki á hverjum degi sem maður er hress með að vakna kl. 4 að nóttu

keyrðum um bæinn á traktor og vöktum kennarana, nágrannarnir voru mis ánægðir hihi en þetta er nú bara einn dagur

síðan var farið í smá ferð og borðað saman og svo hittumst við dátanum um kvöldið.
Ég er svo að fara í fyrsta prófið á morgun er búin að læra aðeins en verð bara stressaðari eftir því sem ég skoða þetta meira

er hætt að læra og tek bara "þetta reddast" á þetta

Læt ykkur vita hvernig gekk en hef ekki meira að segja núna

BÆBÆ